Já svo að ég skrifi nú eitthvað hvað kjellan er búin að vera að
gera, er búin að vera með illt í maganum í 2 daga sem er sossem
ekkert nýtt en er útblásin eins og kasólétt kona, sem að er náttla
ekki alveg að gera sig....
En síðasta föstudag fórum við Morten með Jeppe og Tine á
rokktónleka sem að brósi hennar tína var að syngja á og ég verð nú
bara að segja að þetta var alveg virkilega skemmtó. Og jesús pétur
hættu nú alveg með fólkið þarna, jú þarna sá ég allar típur að
mannverum hoppandi út á gólfi eða alveg frá, það var eins tælensk
eða eitthvað svona skáeigð hún var alveg brandari hún háæf dillaði
sér bara við dauðarokkið svo var hún svo flot í framan að það var
eins og hún hefði orðið fyrir lest held að hún var búin að taka
kannski nokkrar pillur 
En svo á laugardeginum þá fórum við út að borða ég , Ása, Sibba,
Gúrý, Dagný, Sigrún og Sigrún fórum á spise loppen og því
miður komust hinar pjásurnar ekki með en muna að redda pössun með
góðum fyrirvara 
En það var alveg æði ég fékk risarækjur og hreyndýrasteik í
aðalrétt sem að smakkaðist hreint út alveg ameising .... Og má
segja að þetta hafi verið nett billegt sem er ekki leiðinlegt en
fokk við erum að tala um að þjónninn var alveg frá sko og þa´ekki
bara stone´d heldur bara fokkt upp frá helvíti .... ég hef
ekki séð sona áður ... GUÐ MINN EINI bara .... en svona er þetta
bara 
En svo var hún Anna dóra að segja mér frá myndbandinu með Silvíu
Nótt set það hér inn líka ef þið viljið kíkja bara fyndið ...
http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4270135/3
Haldi þið að hún eigi eftir að massa þetta ???
En ég hef ekki mikið meira að segja nema að nú er ég farin í
gang með að selja flíkurnar mínar , þannig að stelpur í koben látið
í ykkur heyra ef þið viljið kaupa föt eða skó 
LATER ....